Afgreiðslustúlka var kýld í andlitið þar sem hún var að afgreiða mann í gegnum lúgu á skyndibitastað á níunda tímanum í gærkvöldi. Maðurinn vildi skipta seðlum í mynt og var afgreiðslustúlkan tilbúin að skipta ákveðinni upphæð sem hefur ekki verið þóknanleg fyrir manninn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Maðurinn var farinn á brott er lögregla kom en málið er í rannsókn.
Um þrjú leytið þurfti lögreglan síðan að hafa afskipti höfð af ungum manni á veitingahúsi við Tryggvagötu en maðurinn er grunaður um að hafa slegið dyravörð í andlitið.