Vatnavextir hafa verið sunnan- og suðaustanlands undanfarna daga í lægðagangi með mikilli úrkomu. Fólk á ferð í þessum landshlutum og á miðhálendinu er hvatt til að gæta varúðar þar sem vöð yfir ár og læki geta verið varhugaverð.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.