Erna Indriðadóttir tók í dag sæti á Alþingi sem varaþingmaður Samfylkingarinnar í forföllum Kristjáns L. Möllers, þingmanns flokksins. Erna er fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og hefur ekki áður tekið sæti á þingi.
Erna er stjórnsýslufræðingur að mennt og hefur meðal annars starfað sem upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls og fréttamaður á Ríkisútvarpinu.