Flogið milli Egilsstaða og Lundúna

Egillstaðaflugvöllur.
Egillstaðaflugvöllur. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Flogið verður tvisvar í viku milli Egilsstaða og Lundúna næsta sumar. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í flugstöðinni á Egilsstöðum í dag, en Austurfrétt greinir frá þessu á vef sínum.

Flogið verður á tímabilinu frá 28. maí til 24. september, og verður flogið tvisvar í viku milli Egilsstaðaflugvalla og Gatwick á miðvikudögum og laugardögum.

Flugið er á vegum bresku ferðaskrifstofunnar Discover the World og hefur að sögn Austurfrétta átt sér töluverðan aðdraganda. Flogið verður á 144 sæta Boeing 737-700 vélum.

Nánar á vef Austurfrétta

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert