Börn sem æfa knattspyrnu í þriðja flokki hjá Fylki hyggst spila fótbolta í tólf tíma á laugardag til að safna áheitum. Tilgangurinn er að safna fé fyrir ungar dætur Þorsteins Elíasar Þorsteinssonar. Þorsteinn var þjálfari hópsins, en hann lést fyrir aldur fram eftir skammvinn veikindi í sumar.
Reikningur hefur verið stofnaður til að safna áheitum. Fram kemur í tilkynningu frá Fylki, að stofnaðir verði reikningar á nöfnum stúlknanna að söfnun lokinni.
Krakkarnir hefja leik utandyra kl. 12. Um kl. 18 munu þau fá aðstöðu inni í Fylkishöll.
Fyrir þá sem vilja styrkja börnin þá er reikningsnúmerið: 0535-26-500305 og kt. 571083-0199.
Andlát: Þorsteinn Elías Þorsteinsson