Stór hluti af þeim ferðatöskum og farangri flugfarþega WOW air, sem skilinn var eftir á Spáni sl. þriðjudag, ætti að vera kominn til landsins.
Alls eru þetta um 100 töskur og annar farangur sem ekki fylgdi eigendum sínum hingað.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, sagði í gær að von væri á meira en helmingi sendingarinnar, en restin ætti svo að skila sér síðdegis í dag.