Lögreglan á Suðurlandi handtók tvo karla og eina konu í gær vegna fjölda innbrota í umdæmi lögreglunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru innbrotin framin aðfaranótt fimmtudags á stóru svæði, eða allt frá Höfn í Hornafirði til Selfoss.
Fólkið er í haldi lögreglunnar á Selfossi og verða þau yfirheyrð síðar í dag.