Rúm milljón safnast fyrir dæturnar

Rúmlega milljón krónur hafa safnast inn á reikning til styrktar dætrum Þorsteins Elíasar Þorsteinssonar, sem lést 37 ára að aldri í júní síðastliðnum. Börn sem Þorsteinn þjálfaði í 3. flokki Fylkis blésu til 12 tíma knattspyrnu í gær til að safna áheitum til styrktar dætrum hans, sem eru fimm og níu ára gamlar.

Alls hafa safnast 1.052.000 krónur samkvæmt Árna Jónssyni framkvæmdastjóra Fylkis.

Fram hefur komið að stefnan var sett á að safna hálfri milljón króna. „Hvort við náum ein­hverju meira, það verður bara að koma í ljós,“ sagði Birna Kristín Eiríksdóttir knattspyrnuiðkandi í 3. flokki í samtali við mbl.is í gær.

Sjá frétt: Tólf tíma knattspyrna fyrir dætur þjálfarans

Jón Steindór Þorsteinsson þjálfari 3. flokks segir knattspyrnuna hafa gengið vel fyrir sig. „Dagurinn í heild sinni var bara frábær. En það voru ansi margir orðnir vel þreyttir undir lokin,“ segir Jón.

Hjartnæm stund

„Meirihluti krakkanna var allan tímann og það er náttúrulega ótrúlegt afrek út af fyrir sig. Það er erfitt að hlaupa og elta bolta stanslaust í tólf klukkutíma, þó að við höfum aðeins reynt að dreifa álaginu.“

Hann segir það hafa verið fallegt augnablik þegar fjölskylda og vinir Þorsteins komu í Fylkishöllina til að þakka fyrir framtakið. „Það var mjög hjartnæm stund og margir áttu erfitt með að halda aftur af tárunum.“

Í heildina komu tæplega 70 krakkar úr 3. flokki að knattspyrnunni í gær. 

„Fyrir utan það komu krakkar úr 2. flokki, 4. flokki og allt niður í 6. flokk og fengu að leggja sitt af mörkum. Heildarfjöldi krakkanna hefur því verið í kringum hundrað. Þetta tókst virkilega vel í alla staði og krakkarnir eiga mikið hrós skilið fyrir frábært framlag og bara flott hjartalag í rauninni.“

Fylltu skarð Þorsteins

Þegar Þorsteinn féll frá í byrjun júní var hann með samning við Fylki um þjálfun fram í september. Aðspurður segir Jón að fjölskylda Þorsteins hafi þó ekki orðið af laununum fyrir það tímabil.

„Eftir andlát Steina ákváðum við þjálfararnir um leið að fylla hans skarð og vinna út samningstímann. Við héldum þá til haga öllum laununum fyrir það og lögðum þau svo inn á söfnunarreikninginn,“ segir Jón og bætir við að söfnunin muni halda áfram fram í byrjun nóvember.

Söfnunin er enn í gangi og fyrir þá sem vilja styrkja dæturnar tvær er reikn­ings­núm­erið 0535-26-500305 og kennital­an 571083-0199. Stofnaðir verða lokaðir reikn­ing­ar á nöfn­um dætr­anna að söfn­un lok­inni og mun peningurinn skiptast jafnt á milli þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert