Gunnar hættir sem fjársýslustjóri

Gunnar H. Hall, fjársýslustjóri ríkissins, fyrir miðju.
Gunnar H. Hall, fjársýslustjóri ríkissins, fyrir miðju. mbl.is/Ómar

Gunnar H. Hall fjársýslustjóri lætur af embætti um næstu áramót og kemur tl starfa í fjármála- og efnahagsráðuneyti samkvæmt fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.

<span>„Gunnar var skipaður ríkisbókari frá 1. janúar 1995. Árið 2002 voru samþykkt ný lög sem fólu meðal annars í sér að Ríkisbókhald tók yfir verkefni embættis Ríkisféhirðis og var þá nafni stofnunarinnar breytt í Fjársýslu ríkisins. Gunnar hefur því stýrt starfsemi stofnunarinnar samfleytt í 21 ár með farsælum hætti. Í byrjun næsta árs kemur hann til starfa í fjármála- og efnahagsráðuneyti og vinnur þar með teymi ráðuneytisins að innleiðingu væntanlegra laga um opinber fjármál, samkvæmt frumvarpi þar um, auk þess að sinna öðrum verkefnum,“ segir þar ennfremur.</span> <span>Þá kemur fram að embætti fjársýslustjóra verði auglýst laust til umsóknar á fimmtudaginn. Gert sé ráð fyrir að fjármála- og efnahagsráðherra skipi í embættið til fimm ára frá 1. janúar 2016.</span>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert