Dælt úr Perlu á mánudag

Stefnt er að því að hefja dælingu úr Perlunnar, sem situr á botni gömlu hafnarinnar við Ægisgarð í Reykjavík, um hádegisbil á mánudaginn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Faxaflóahöfnum. Fram að því heldur undirbúningur aðgerða áfram.

Farið var yfir drög að aðgerðaáætlun vegna Perlu á fundi í dag með fulltrúum Björgunar, tryggingafélagi skipsins og ráðgjöfum. Það sem af er vikunnar hefur eftirfarandi verið gert: Búið er að létta framskipið um um það bil 15 tonn að talið er með því að fjarlægja akkeri, akkeriskeðjur, mastur og dælurör. Nokkrir lekar fundust við skoðun og hafa þeir verið þéttir. Til reiðu eru nú dælur sem hafa tvöfada afkastagetu miðað við þær dælur sem áður voru notaðar. Talsverður tími hefur farið í að reikna út áhrif aðgerða á stöðugleika skipsins þegar kemur að því að lyfta því af botninum.

„Gert verður ráð fyrir að nýta ekjubrú í eigu Faxaflóahafna sf. til stuðnings Perlunni, dráttarbáta hafnarinnar og í undirbúningi er að rannsóknarskip Hafrannsóknarstofnunar, Árni Friðriksson muni verða einnig til aðstoðar. Sem fyrr liggur Perlan stöðug á botni hafnarinnar og ekki yfirvofandi hætta á mengun vegna olíu og glussa sem eru um borð í skipinu - en áfram verður fylgst með stöðu þeirra mála,“ segir ennfremur.

Þá er ítrekað að aðgerð sem þessi sé flókin og vandasöm og fyrir vikið séu frekari aðgerðir verða háðar því að veðurspá gangi eftir og að undirbúningi ljúki fyrir tilsettan tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert