Kristján X. vildi tvívegis senda herskip til að aga Íslendinga

Frá opinberri heimsókn Kristjáns X Danakonungs og fjölskyldu til Íslands …
Frá opinberri heimsókn Kristjáns X Danakonungs og fjölskyldu til Íslands til ÍSlands 26. júní 1921. Ljósmynd/Ólafur Magnússon

Einkadagbækur Kristjáns X., síðasta konungsins sem ríkti yfir Íslandi, sýna að hann lét sér tvívegis til hugar koma að dönsk herskip yrðu send hingað til að aga landsmenn.

Þetta var þegar Uppkastinu var hafnað 1908 og í fánadeilunni 1913. Konungur hafði hins vegar ekki stjórnskipunarlega stöðu til slíkra verka.

Bók með áður óbirtum dagbókarfærslum konungs er að koma út, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert