85% lifa aðgerðirnar

Tómas og Tómas eru höfuðpaurar rannsóknarinnar.
Tómas og Tómas eru höfuðpaurar rannsóknarinnar. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Norræn rannsókn sem læknar á Landspítala stýrðu sýnir að 85% sjúklinga lifa bráðar kransæðahjáveituaðgerðir af og 79% eru lifandi fimm árum eftir aðgerð.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landspítala þar sem vísað er í hið virta vísindarit European Journal of Cardiothoracic Surgery þar sem rannsóknin, The Nordic-Emergceny/Salvage (NES) CABG study: Is emergency and salvage coronary artery bypass grafting justified? birtist en hún er hluti af doktorsverkefni Tómasar A. Axelssonar, læknis við læknadeild HÍ. Leiðbeinandi hans er Tómas Guðbjartsson, prófessor sem jafnframt stýrði rannsókninni.

Náði rannsóknin til 614 sjúklinga á fjórum háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndum; Gautaborg, Turku, Tampere og Reykjavík.

Í fréttatilkynningu Landspítala segir að rannsóknin sé ein sú stærsta sinnar tegundar og að mjög hafi skort á rannsóknir á árangri kransæðahjáveituaðgerða sem oft séu gerðar við erfiðar aðstæður.

150 kransæðahjáveituaðgerðir árlega

70% þeirra hjartaaðgerða sem framkvæmdar eru á Vesturlöndum eru kransæðahjáveituaðgerðir og árlega eru framkvæmtar um 150 slíkar á Íslandi. Notast er við hjartaö og lungnavél og æðagræðlingar tengdir framhjá stíflum í kransæðum til að bæta blóðflæði til hjartans.

Segir í tilkynningu Landspítala að aðgerðin sé oftast valaðgerð og að sjúklingar séu undirbúnir með góðum fyrirvara en að suma þurfi þó jafnvel að taka í aðgerð beint eftir komu á sjúkrahús.

„Oftast er um að ræða sjúklinga með hjartaáfall þar sem ekki tekst að víkka stíflaða kransæð við hjartaþræðingu eða sjúklinga sem þurfa hjartahnoð og eru í losti eftir stórt hjartadrep,“ segir í tilkynningunni.

„Niðurstöður rannsóknarinnar sýna mjög góðan árangur þar sem margir þessara sjúklinga eru í bráðri lífshættu við komu á sjúkrahús. Niðurstöðurnar eru hvetjandi fyrir þá sem koma að meðferð þessara sjúklinga, og hún undirstrikar mikilvægi þess að boðið sé upp á flókna meðferð eins og hjáveituuaðgerðir allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, líkt og gert hefur verið á Landspítala.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert