Nú er hægt að kaupa áskrift að strætókorti í gegnum Strætó appið, en sú nýjung var tekin í notkun í dag. Bæði er hægt að kaupa mánaðarkort eða skrá sig í áskrift og fá þá þriðja hvern mánuð frían. Áskriftin og mánaðarkort gilda á höfuðborgarsvæðinu og kosta 10.900 kr á mánuði.
Fram kemur í tilkynningu, að það sé einfalt að skrá sig í áskrift í appinu og jafn auðvelt að segja henni upp. Eins og með annað í appinu þá er þjónustan hönnuð til að einfalda og auðvelda farþegum Strætó að komast leiðar sinnar.
Ár er síðan að byrjað var að selja farmiða í gegnum appið og hafa viðtökur farið fram úr björtustu vonum. Á einu ári hafa selst um 250 þúsund miðar í gegnum appið.