Flutningabifreið með tengivagn fór á hliðina í Bolöldu við Jósepsdal í morgun. Ökumaður flutningabílsins var fluttur á slysadeild til skoðunar en hann slasaðist ekki alvarlega.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins segir í samtali við mbl.is að tilkynning um óhappið hafi borist klukkan 9:10. Bifreiðin var ekki á mikilli ferð þegar hún fór á hliðina.
Ökumaðurinn vankaðist um stund við höggið, en sem fyrr segir hlaut hann ekki alvarleg meiðsl.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er talið að fjöður eða fjaðrir hafi brotnað með ofangreindum afleiðingum. Málið er í rannsókn.