Mynd af forsætisráðherra á uppboð

Gilbert Sigurðsson, Ýrr Baldursdóttir og Jóhannes Þór Skúlason við myndina …
Gilbert Sigurðsson, Ýrr Baldursdóttir og Jóhannes Þór Skúlason við myndina af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.

Listakonan Ýrr Baldursdóttir, húðflúr- og airbrush meistari, sem málað hefur andlitsmynd af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra, hefur lánað verkið á skrifstofu Framsóknarflokksins þar sem það mun hanga uppi til sýnis næstu vikur, eða þar til það verður selt í þágu góðs málefnis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Framsóknarflokknum.

„Ýrr og Gilbert Sigurðsson umboðsmaður hennar leggja áherslu á að allur ágóði af sölunni renni til  Barnaspítala Hringsins og langveikra barna. Öllum er frjálst að bjóða í verkið, sem eins og fyrr sagði er hægt að skoða nánar á skrifstofu flokksins á Hverfisgötu 33, og lágmarksverð er 300 þúsund krónur,“ segir fréttatilkynningunni en þar er einnig tekið fram að Ýrr hafi meðal annars málað gítar fyrir hljómsveitina Skálmöld sem var seldur á 500 þúsund sem runnu til samtakanna Blátt áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert