Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þremur karlmönnum í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Munu þeir sitja í gæsluvarðhaldi til 22. desember.
Fjórir einstaklingar, tveir Íslendingar og tveir Hollendingar, sitja í heild í gæsluvarðhaldi vegna málsins eftir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á tugi kílóa af sterkum fíkniefnum. Efnin fundust í bifreið sem kom til landsins með Norrænu 22. september.
Í síðasta mánuði var sagt frá því að mennirnir séu á þrítugs- og fertugsaldri, en í Fréttablaðinu var haft eftir Aldísi Hilmarsdóttur aðstoðaryfirlögregluþjóni að málið sé stórt á íslenskan mælikvarða
Í dómi Hæstaréttar kemur fram að fundist hafi 19,5 kíló af amfetamíni og rúmlega 2,5 kíló af kókaíni í tengslum við málið og þá hafi einn hinna handteknu verið með umslag með 15.600 evrum. Þá fundust svokölluð Ikort við húsleitir og kom í ljós að lagt hafði verið inn á þau um 17 milljónir og stór hluti þess fjármagns tekinn út úr hraðbanka í kjölfarið.