Kveikt var á jólatré Fáskrúðsfirðinga í dag en tréð er gjöf til íbúanna frá Fjarðabyggð.
Margt var um manninn og var gengið í kringum tréð og sungin jólalög. Jólasveinar mættu á svæðið með góðgæti og spjölluðu við börnin.
Gott veður er á Fáskrúðsfirði en kalt og jörð hvít.