Snjóruðningur gengur vel

Mikill snjór er á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Mikill snjór er á höfuðborgarsvæðinu í dag. mbl.is/Eggert

Mokstur á strætum og stígum Reykjavíkur hefur gengið vel í morgun. Gríðarlegt fannfergi var í borginni eftir mikla snjókomu og voru öll moksturstæki kölluð út snemma. Var búið að ryðja allar forgangsleiðir um tíuleytið í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þá segir að öll tiltæk tæki vinna nú að mokstri í húsagötum og á göngu- og hjólastígum. Í fyrrinótt snjóaði einnig talsvert og var snjóruðningsfólk borgarinnar vel á veg komið með að ná tökum á því ástandi. Í morgun sást hins vegar hvergi að tekið hefði verið til hendinni í gær því jafnfallinn snjór var víða um 30 sentímetra djúpur. Unnið verður alla helgina að því að ryðja götur. Vel viðrar til moksturs og því ætti allt að ganga vel, segir í tilkynningunni.

Í gærmorgun mældist mesta snjódýpt á landinu í Reykjavík eða 21 sentímetra. Það er ljóst að metin falla, því enn meira snjóaði í nótt en í fyrrinótt. Mældist þá mesta snjódýpt í Reykjavík í nóvember síðan 1979 og er hún sú fjórða mesta í Reykjavík frá stofnun Veðurstofu Íslands samkvæmt Sigurði Þór Guðjónssyni veðursagnfræðingi.  

Reykjavíkurborg hvetur fólk til að fara varlega í umferðinni í þessari þungu færð, leggja ekki af stað á vanbúnum bílum og gefa sér góðan tíma til ferða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert