Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur birt skilaboð á Facebook-síðu sinni í tengslum við óveðrið sem nálgast. Skilaboðin eru einföld, en þau eru svohljóðandi:
„Tökum höndum saman og komum í veg fyrir vesen. Það er frekar fúl veðurspá á morgun, bæði er gert ráð fyrir snjókomu og að snjórinn sem fyrir er fari að fjúka. Færð getur spillst og skyggni orðið slæmt. Vöndum okkur í umferðinni og verum ekki á óþarfa þvælingi.“
Tökum höndum saman og komum í veg fyrir vesen. Það er frekar fúl veðurspá á morgun, bæði er gert ráð fyrir snjókomu og ...
Posted by Slysavarnafélagið Landsbjörg on 30. nóvember 2015