Flestu innanlandsflugi aflýst

Allt innanlandsflug liggur niðri.
Allt innanlandsflug liggur niðri. mbl.is/Kristinn

Öllum ferðum Flugfélags Íslands hefur verið aflýst í dag. Flugfélagið Ernir hefur aflýst átta ferðum í dag en fjórar ferðir eru enn sagðar á áætlun, allar eftir kl. 15.45 í dag. 

Á áætlun Flugfélags Íslands voru tvær ferðir til og frá Ísafirði, tvær ferðir til og frá Egilsstöðum, þrjár ferðir til Akureyrar og tvær ferðir frá Akureyri til Reykjavíkur. 

Enn virðist ekki vera nein röskun á millilandaflugi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert