Í gær var lokadagur til að ná samkomulagi um framtíð Reykjaneshafnar.
Höfnin er afar skuldsett og fundað var í gær með kröfuhöfum sem gáfu greiðslufrest 15. október til gærdagsins.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði í gærkvöldi að ekki væri hægt að gefa upplýsingar um málefni fundarins fyrr en kauphöllinni hefði verið tilkynnt um niðurstöðu hans og mun það verða gert í dag.