Flestir senda jólakort með bréfpósti

MMR kannaði nýlega hvernig og hvort Íslendingar sendi jólakort þetta árið. Í ljós kom að flestir eða tæplega helmingur (46,8%) þeirra sem tóku afstöðu sögðust ætla að senda jólakort með bréfpósti. Þeir sem senda bæði með bréfpósti og rafrænt voru 9,5% og aðeins fleiri eða 10,7% þeirra sem tóku afstöðu sögðust ætla að senda eingöngu rafræn jólakort. Það sögðust þriðjungur eða 33% sem ætla sér ekki að senda jólakort þetta árið og nýta tímann fyrir jól í mögulega eitthvað annað.

Þeir sem voru í aldurshópnum 18-29 ára voru líklegri til að senda ekki jólakort borið saman við fólk á aldrinum 30 ára og eldra. Þannig sögðust 56,3% þeirra sem voru 18-29 ára ekki ætla að senda jólakort en undir 30% þeirra sem voru í öðrum aldurshópum ætla ekki að senda jólakort. Í tilkynningu frá MMR er bent á að fleiri í eldri aldurshópunum 50 ára og eldri ætla að senda jólakort með rafrænum hætti og í bréfpósti borið saman við aðra aldurshópa.

Það reyndist einnig nokkur munur á hvort fólk sendir jólakort eftir starfi. Meira en helmingur þeirra sem sögðust vera námsmenn ætla ekki að senda jólakort eða um 52,6% og þar á eftir kemur fólk í þjónustu-og afgreiðslustörfum eða um 43,6% segjast ekki ætla að senda jólakort. Þegar litið er til þess hvort fólk ætli að senda jólakort eftir tekjuflokkum kemur í ljós að tæp 56% þeirra sem eru í lægsta tekjuflokknum ætla ekki að senda jólakort borið saman við þá sem eru í þremur hæstu tekjuflokkunum þar sem undir 30% þeirra sem tóku afstöðu senda ekki jólakort.

Hér má sjá tilkynningu MMR í heild sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert