Hópur fjárfesta hefur kynnt fulltrúum Reykjavíkurborgar hugmyndir um að breyta Perlunni, einu helsta kennileiti borgarinnar, í lúxushótel.
Hugmyndin gengur út á að byggja viðbyggingu við núverandi sex vatnstanka, sem myndi líta út eins og nýir en lágreistari tankar, og innrétta þar 200 hótelherbergi, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þettta í Morgunblaðinu í dag.
Þar sem nú er útsýnispallur yrði sundlaug og heitir pottar.