Voru handtekin eftir ábendingu hótelstarfsmanns

4 kg af kókaíni sem fannst í fórum Íslendinga í …
4 kg af kókaíni sem fannst í fórum Íslendinga í Forta­leza í Brasilíu. Ljós­mynd/​www.pm.ce.gov.br/

Brasilískir netmiðlar hafa fjallað nokkuð um íslenska parið, sem nú situr í gæsluvarðhaldi í Fortaleza í Brasilíu eftir að fjögur kíló af kókaíni fundust í fórum þeirra þann 26. desember. Í umfjöllun fjölmiðla kemur m.a. fram að hótelstarfsmaður hafi gert lögreglu viðvart um að parið hafi yfirgefið hótelið, þar sem hann starfaði, með talsvert magn fíkniefna.

Leigubílstjóri, sem ók fólkinu á annað hótel, staðfesti þann vitnisburð.

Í einni fréttinni kemur fram að sex lögreglumenn hafi staðið að handtöku fólksins á Motel Paradís í bænum Itaóca. 

Þá kemur einnig fram fólkið hafi fengið túlk sér til aðstoðar.

Í athugasemdakerfum þessara fjölmiðla hafa nokkrir Íslendingar látið í ljós skoðun sína og sýnist sitt hverjum. Sumir hæðast að fólkinu á meðan aðrir láta í ljós samhug sinn og ósk um að þeim farnist vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert