Einn heppinn spilari var með allar tölur réttar í útdrætti kvöldsins í lottóinu. Hann nældi sér þar með í allan pottinn og fær tæpar 15 milljónir króna í vinning. Miðinn var seldur í Vídeómarkaðnum að Hamraborg 20 í Kópavogi.
Fjórir skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver um sig um 161 þúsund krónur. Miðarnir voru seldir í N1 við Ægisíðu, Olís Álfheimum, Samkaup Úrvali á Grundafirði og einn var í áskrift.
Einn var með fimm réttar tölur í Jókernum og fær hann 2 milljónir króna. Miði sá er í áskrift.
Þá voru þrír með fjórar réttar tölur í Jókernum og fá þeir hundrað þúsund krónur í vasann. Miðarnir voru seldir á Olís Neskaupstað, Skýlinu Vestmannaeyjum og Veganesti við Hörgárbraut á Akureyri.