Starfsfólk á sjúkrahúsinu Vogi, sem er meðferðarstöð SÁÁ, þurfti að leita eftir aðstoð lögreglu á ellefta tímanum í gærkvöldi vegna ölvaðs manns sem kom þangað og var til vandræða. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglu meðan ástand hans lagast.
Um klukkan þrjú í nótt var síðan annar ölvaður maður handtekinn á Laugavegi og gistir fangaklefa þangað til ástand hans skánar.