„Sama fjármálakerfi og hrundi“

Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Golli

„Ríkisstjórnin afneitar orsökum efnahagshrunsins á Íslandi árið 2008. Stjórnarflokkarnir eru á fullri ferð við að endurreisa sama fjármálakerfi og hrundi. Það er sami veiki gjaldmiðillinn, sama vonda verðtryggingin, sömu okurvextirnir og bráðum nú líka myntkörfulánin. Sama fákeppni á bankamarkaði og lífeyrissjóðir lítt breyttir.“

Þetta sagði Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag og bætti við: „Vinna hafin við að endurreisa viðskiptabankaveldin á ný með drottnandi stöðu sinni. Vaxandi spilling á hlutabréfamarkaði og þenslumerki ýmis. Sama stýrivaxtapólitík sem heldur uppi kostnaði í atvinnulífinu, óhóflegum, og laðar erlenda spákaupmenn í vaxtamunarviðskiptum með fjármuni á nýjan leik inn í Seðlabankann,“ sagði Helgi. Sagði hann þjóðarbúinu vegna vel. Meðal annars vegna ytri aðstæðna. Landið væri hins vegar viðkvæmt fyrir breytingum á þeim.

„Það er vaxandi áhyggjuefni ef það er afstaða stjórnvalda að það eigi að endurreisa í óbreyttri mynd það fjármálakerfi sem féll.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert