Mögulegt að lækka matvælaverð

Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri og Erna …
Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri og Erna Bjarnadóttir hagfræðingur kynna úttekt samtakanna á matvælaverði á Íslandi. mbl.is/Árni Sæberg

Mögulegt er að lækka matvöruverð á Íslandi, samkvæmt úttekt Bændasamtaka Íslands á þáttum sem hafa áhrif á matarverð. Til þess þurfi að grípa til tiltekinna ráðstafana sem aðallega snúa að versluninni í landinu.

Meðal annars þurfi að tryggja virka samkeppni á dagvörumarkaði og tryggja að hagræðing í búrekstri skili sér til neytenda. Telur bændaforystan að verslunarfyrirtæki taki of stóran hluta til sín á kostnað neytenda og bænda.

Finnur Árnason, forstjóri Haga, er á öðru máli og segir m.a. í frétaskýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag, að landbúnaðarvörur séu seldar á lágmarksverði og álagning hafi almennt farið lækkandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert