Áður en ákveðið var að taka upp núverandi fyrirkomulag við fósturskimanir var kostnaður við einstaklinga með Downs-heilkennið reiknaður út.
Helga Gottfreðsdóttir, doktor í ljósmæðrafræðum við HÍ, segir í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag, að siðferðilega hliðin hafi ekki verið skoðuð að ráði fyrr en síðar.
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir að oft séu sett kostnaðargildi á ýmsa hluti sem mörgum finnist ekki við hæfi.