Engin listería í álegginu og laxinum

Þorkell Þorkelsson

Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitafélaga munu á þessu ári gera úttekt á sýnatökum þeirra sem framleiða matvæli, tilbúin til neyslu. Þetta kemur fram í frétt á vef Matvælastofnunar þar sem fjallað er um niðurstöður sýna sem starfsmenn Matvælastofnunar tóku í desember 2014 og 2015 sýni af matvælum tilbúnum til neyslu, til greiningar á sjúkdómsvaldandi listeríu (Listeria monocytogenes). Tekin voru sýni af reyktum og gröfnum fiski og ýmsum áleggstegundum. Bakterían greindist ekki í neinu sýnanna.

Listeriosis er heiti sjúkdómsins sem bakterían veldur og eru matvæli tilbúin til neyslu algengasta smitleiðin. Hópsýkingar af völdum þessarar bakteríu eru þó ekki algengar en sýkingin er alvarleg og dánartíðni er há meðal þeirra sem veikjast. Það eru einkum ónæmisbældir einstaklingar og fólk sem nær háum aldri sem getur sýkst. Einnig geta fóstur orðið fyrir skaða ef barnshafandi konur sýkjast af bakteríunni.

Tekin voru sýni úr 63 framleiðslulotum af reyktum og gröfnum fiski og ýmsum áleggstegundum s.s. skinku. Listeria monocytogenes greindist ekki í neinu sýnanna, en það er sú listeríutegund sem helst sýkir menn og dýr og sett hafa verið viðmið fyrir í reglugerð.  

Frétt Matvælastofnunar í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert