Engan virðist hafa sakað þegar bíll fór út af veginum og valt við Reykholt í Borgarfirði á fjórða tímanum í dag.
Allt tiltækt lið var kallað út en í bílnum var móðir með tvö ung börn.
Farið var með fjölskylduna á heilsugæslu til skoðunar en svo virðist sem bæði börn og móðir hafi sloppið með lítil meiðsl.