Vegurinn yfir Fróðárheiði lokaður

Hálka og skafrenningur er á Sandskeiði, Hellisheiði og Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og hálka eða snjóþekja á öðrum vegum á Suðurlandi. 

Vestanlands er hálka eða snjóþekja á vegum en flughálka og skafrenningur á Útnesvegi. Vegurinn yfir Fróðárheiði er lokaður.

Hálka eða snjóþekja er á sunnanverðum Vestfjörðum, þæfingsfærð á Klettshálsi og ófært á Kleifaheiði. Þæfingsfærð er á milli Króksfjarðarness og Reykhóla og mikill skafrenningur. Á norðanverðum fjörðunum víða snjóþekja eða hálka. Á vegi 60 eru umferð vísað um vetrarveg við Bæjardalsá og Geiradalsá.

Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi en ófært á Dettifossvegi. Austanlands er víðast hvar hálka og snjóþekja eða hálka með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert