Veðurstofa Íslands spáir norðan- og norðaustanátt, 8-15 m/s og éljum en þurru og björtu að mestu sunnan- og suðvestantil. Hægari vndur þegar líður á daginn. Frost yfirleitt 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum.
Á miðvikudag:
Austan 8-15 og snjókoma eða él með suðurströndinni, annars hægari vindur og sums staðar dálítil él. Frost 1 til 10 stig, en hiti um frostmark syðst.
Á fimmtudag og föstudag:
Suðaustlæg átt 5-13 m/s. Él sunnan- og vestantil, en þurrt og bjart að mestu norðanlands. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Austlæg átt og bjart að mestu, en él á stöku stað. Heldur kólnandi veður.
Á sunnudag:
Norðaustlæg átt og dálítil él norðan- og austantil, en bjart suðvestanlands. Kalt í veðri.
Á mánudag:
Útlit fyrir vaxandi sunnan átt með vætu og hlýnandi veðri.