Slæm færð í hávaðaroki

mbl.is

Það er mjög hvasst víða og 18-23 metrar á sekúndu í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls og á sunnanverðum Austfjörðum. Það er hálka og snjór á Austurlandi. Þungfært og skafrenningur á Fjarðarheiði og Oddsskarði og á Norðurlandi er þæfingsfærð í Víkurskarði.

„Nú í vikubyrjun steypist yfir okkur kalt loft úr norðri og gæti frostið farið að bíta í kinnar. Norðanáttin í dag (mánudag) verður ýmist strekkingur eða allhvöss, en það geta myndast staðbundnir vindstrengir af stormstyrk, og er þeirra helst að vænta sunnan Vatnajökuls og syðst á Austfjörðum. Eins og svo oft áður fylgja norðanáttinni él norðan- og austanlands, en sunnan heiða verður bjart veður.

Í kvöld og nótt fer að draga úr vindinum, en norðanáttin getur oft verið lengi að ganga niður og búist er við að hún haldi velli í veikari mæli á morgun. Þá verður áfram kalt og él, en þurrt á sunnanverðu landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands í morgun.

Það er hálka og skafrenningur á Sandskeiði og Hellisheiði en einnig hálka eða hálkublettir á flestum öðrum vegum á Suðurlandi. Á Vesturlandi er víðast hvar hálka en þungfært og skafrenningur er á Bröttubrekku og Fróðárheiði.

Enn er verið að kanna ástand á vegum á Vestfjörðum, þó er ófært á Þröskuldum og Kleifaheiði. Þæfingsfærð er á Hjallhálsi og Gemlufallsheiði. Á vegi 60 er umferð vísað um vetrarveg við Bæjardalsá og Geiradalsá.

Á Norðurlandi er snjóþekja eða hálka ásamt skafrenningi eða éljagangi mjög víða en þó sérstaklega norðaustantil. Þæfingsfærð er á Víkurskarði.

Hálka eða snjóþekja er á Austurlandi og skafrenningur víða. Þungfært og skafrenningur er á Fjarðarheiði og Oddsskarði. Hálka er einnig með suðausturströndinni.

Veðurspá fyrir næsta sólarhring:

Norðan 10-18 m/s, en 18-23 í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls og á sunnanverðum Austfjörðum. Él norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Kólnandi veður, frost 2 til 9 stig síðdegis. Dregur smám saman úr vindi í kvöld og nótt, norðan 5-13 þegar kemur fram á morgundaginn og él, en léttskýjað sunnantil á landinu. Áfram kalt í veðri.

Á þriðjudag:
Norðan 5-13 m/s og él, en léttskýjað sunnantil á landinu. Frost 3 til 10 stig.

Á miðvikudag:
Austlæg átt 3-8 m/s og úrkomulaust að mestu, en 8-13 og él með suðurströndinni. Hiti frá frostmarki syðst, niður í 10 stiga frost í innsveitum fyrir norðan.

Á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir suðaustan- og austanátt. Snjókoma eða slydda með köflum um landið sunnanvert og hiti um eða rétt yfir frostmarki. Lengst af bjart veður norðantil og vægt frost.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert