Það er reiknað með vaxandi snjókomu suðaustanlands og víða bleytusnjó sem aftur veldur hálku á vegum. Einkum á þetta við um þjóðveginn frá Vík og austur fyrir Höfn. Austan strekkingur og því nokkuð blint á köflum þegar líður á daginn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Hálkublettir eru í Þrengslum en Hringvegurinn er auður á Suðurlandi en nokkur hálka er þar á öðrum vegum.
Snjóþekja er á Fróðárheiði annars er hálka á Vesturlandi og Vestfjörðum og sums staðar er snjóþekja og skafrenningur.
Það éljar eða snjóar á Norðurlandi og þar er snjóþekja eða hálka víðast hvar.
Á Austurlandi er ófært á Fjarðarheiði og á Oddsskarði og beðið með mokstur annars er snjóþekja og hálka á víða á vegum og snjókoma. Þungfært er á Vatnsskarði eystra og Hróarstunguvegi.
Með ströndinni Suðaustanlands er hálka.