Vissi að lögreglan var á eftir

Ökumaðurinn virti ekki stöðvunarmerki lögreglumanns sem þurfti að aka nokkuð …
Ökumaðurinn virti ekki stöðvunarmerki lögreglumanns sem þurfti að aka nokkuð langa leið á eftir honum þar til að hann stöðvaði bifreið sína mbl.is/Golli

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum kært hátt í fjörtíu ökumenn fyrir of hraðan akstur í umdæminu. Sá sem hraðast ók mældist á 147 km hraða á Reykjanesbraut.

Ökumaðurinn virti ekki stöðvunarmerki lögreglumanns sem þurfti að aka nokkuð langa leið á  eftir honum þar til að hann stöðvaði bifreið sína. Þarna var á ferðinni erlendur ferðamaður, sem kvaðst hafa vitað af lögreglubifreiðinni á eftir sér. Auk hraðakstursins var hann því einnig kærður fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu og sektaður um 105.000 krónur, sem hann greiddi á staðnum.

Tveir ökumenn til viðbótar, sem staðnir voru að hraðakstri, reyndust báðir vera ölvaðir undir stýri og annar þeirra einnig undir áhrifum amfetamíns. Sá síðarnefndi var jafnframt sviptur ökuréttindum ævilangt. Fjórði ökumaðurinn sem ók of hratt viðurkenndi að vera undir áhrifum amfetamíns og framvísaði jafnframt amfetamíni á lögreglustöð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert