Kvennaskólinn í Reykjavík hafði betur gegn Menntaskólanum við Sund í átta liða úrslitum Gettu Betur í kvöld.
Úrslitin voru 27-20 Kvennaskólanum í vil og eru liðsmenn hans því komnir áfram í undanúrslit keppninnar.
Þegar hefur lið Menntaskólans í Reykjavík tryggt sér sæti í undanúrslitum. Í næstu viku etja kappi lið MH og MÍ og þar á eftir FSS og MA um þau sæti sem eftir standa.