Enginn var með allar tölurnar réttar í Lottó í kvöld, en aðalvinningurinn var 23,4 milljónir. Fjórir fengu bónusvinning sem nam tæplega 100 þúsund krónum á hvern miða. Einn var með allar tölurnar réttar í Jókernum og fær sá einstaklingur 2 milljónir í sinn hlut. Jókermiðinn var seldur í 10-11 í Suðurfelli í Reykjavík.
Sex spilarar voru með fjórar tölur réttar í Jókernum og fær hver spilari 100 þúsund krónur í sinn hlut.