Undir smásjá í snjallsímum sjúklinga

Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands, segir dæmi um að læknar …
Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands, segir dæmi um að læknar hér á landi hafi verið teknir upp að sér forspurðum.

Svo virðist sem það hafi færst í vöxt á undanförnum árum að sjúklingar taki upp á snjallsíma sína samskipti sín við lækna og störf þeirra án leyfis.

Til dæmis barst Embætti landlæknis nýverið kvörtun frá sjúklingi sem var studd upptöku sem tekin var að heilbrigðisstarfsmanni forspurðum, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, segist vita um nokkur dæmi þess að sjúklingar taki upp samskipti sín við lækna á snjallsíma sína að þeim forspurðum og nýverið barst Persónuvernd fyrirspurn þessa efnis frá heilbrigðisstarfsmanni sem spurði hver væri réttur hans ef skjólstæðingur tæki upp samtal, hljóð og mynd af honum í hans óþökk.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert