Réttur til að nýta alla nytjastofna á Íslandsmiðum

Allt bendir nú til þess að hvalveiðar Hvals hf. og …
Allt bendir nú til þess að hvalveiðar Hvals hf. og hvalskurður fyrirtækisins leggist af í sumar. mbl.is/Ómar

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir mikilvægt að Íslendingar sem sjávarútvegsþjóð haldi þeim rétti til streitu að nýta alla nytjastofna, þar á meðal hvali, á meðan það sé gert með sjálfbærum og hagkvæmum hætti.

„Það er auðvitað þjóðhagslegt tap að missa af þessum tekjum sem útflutningur á hvalaafurðum hefur gefið okkur og auðvitað er það einnig tekjutap þeirra sem hafa unnið að hvalveiðum og vinnslu hjá Hval hf. bæði fyrir einstaklinga og samfélög,“ segir Sigurður Ingi í Morgunblaðinu í dag.

„Það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir okkur sem sjávarútvegsþjóð að við höfum verið að nýta tvær hvalategundir með sjálfbærum hætti. Það er mikilvægt fyrir okkur að halda þeim rétti okkar til streitu,“ bætir hann við.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert