Í gærkvöldi var tilkynnt til lögreglu um nokkur innbrot í fyrirtæki í Hafnarfirði. Við rannsókn lögreglu var karlmaður á fimmtugsaldri handtekinn á ellefta tímanum grunaður um innbrotin.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er hann vistaður í fangageymslu. Í einu fyrirtækinu hafði þjófurinn komist í sjóðsvél og stolið skiptimynd. Í hinum fyrirtækjunum er talið að engu hafi verið stolið en eignaspjöll voru unnin á útidyrahurðum og/eða rúður brotnar.