Írskir vetrardagar verða í fyrsta sinn haldnir á Akranesi dagana 17. til 20. mars. Menningar- og safnanefnd Akraness samþykkti á liðnu ári að undirbúa þessa nýjung í menningarlífi bæjarins.
Í tilefni af degi heilags Patreks, eða St. Patrick‘s Day, verður grænn dagur á Akranesi á morgun, fimmtudag. Bæjarbúar og fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að skarta grænum lit þann dag, að því er kemur fram á vef Akraneskaupstaðar.
Markmiðið með Írskum vetrardögum er að tengjast Írlandi enn frekar, meðal annars í gegnum bókmenntir og tónlist, en Írskir dagar hafa verið haldnir undanfarin sumur á Akranesi við góðar undirtektir.
María Neves, nemandi í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum, mun aðstoða við skipulag og utanumhald Írskra vetrardaga og er verkefnið liður í námi hennar á Hólum.