Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók konu sem var í mjög annarlegu ástandi á ellefta tímanum í gærkvöldi. Konan hafði verið á veitingahúsi og farið frá ógreiddum reikningi. Konan brást illa við afskiptum lögreglu og er vistuð í fangageymslu sökum ástands.
Lögreglan sektaði á fimm tímum í nótt 27 bifreiðar fyrir að þeim var lagt ólöglega, á gangstéttum, göngustígum, umferðareyjum ofl. í Mosfellsbæ, Grafarvogi og Grafarholti.