Félagið hluti af stærri rannsókn

Reykjavík Media ehf., fjölmiðlafyrirtæki Jóhannesar Kr. Kristjánssonar, vinnur að fréttum …
Reykjavík Media ehf., fjölmiðlafyrirtæki Jóhannesar Kr. Kristjánssonar, vinnur að fréttum um félag Önnu Sigurlaugar, Wintris Inc., ásamt alþjóðlegum samtökum rannsóknarblaðamanna, ICIJ. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Jóhannes Kr. Kristjánsson, fjölmiðlamaður, staðfestir í samtali við mbl.is að hann sé með félag Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu forsætisráðherra, til umfjöllunar. Félagið er hluti af stærri umfjöllun sem hann vinnur nú að um skattaskjólsfélög.

Sjá fréttaknippi mbl.is: Er­lent fé­lag eig­in­konu for­sæt­is­ráðherra

„Ég grennslaðist fyrir um málið,“ segir Jóhannes, en hann segist ekki geta greint nánar frá umfjöllun sinni að svo stöddu.

Reykjavík Media ehf., fjölmiðlafyrirtæki Jóhannesar,  vinnur að fréttum um félag Önnu Sigurlaugar, Wintris Inc., ásamt alþjóðlegum samtökum rannsóknarblaðamanna, The International Consortium of Investigative Jounalists (ICIJ) og þýska dagblaðinu Sūddeutsche Zeitung.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, hefur greint frá því að skatt­ar hafi frá upp­hafi verið greidd­ir af er­lenda fé­lag­inu Wintris Inc. Eign­ir félagsins, sem er skráð á Bresku-Jóm­frúreyj­um og er í fjár­stýr­ingu hjá úti­búi Cred­it Suis­se á Bretlandi, nema rúm­um millj­arði, auk þess sem fé­lagið á kröf­ur á alla föllnu bank­anna.

Félag Önnu Sigurlaugar hefur verið rætt á Alþingi í vikunni og hafa þingmenn Vinstr grænna meðal annars krafist þess að ríkisstjórnin fari frá.

Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundur Davíðs Gunnlaugsson forsætisráðherra, á félagið …
Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundur Davíðs Gunnlaugsson forsætisráðherra, á félagið Wintris sem skráð er á Bresku jómfrúreyjum. mbl.is/Steinþór
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert