Er hugsi yfir forsætisráðherra

Óttarr Proppé.
Óttarr Proppé. Photo: Styrmir Kári

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar er hugsi yfir forsætisráðherra landsins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, í kjölfar viðtals sem birtist í Fréttablaðinu í gær. 

Óttarr birti færslu í gær á Facebook undir fyrirsögninni: Er hugsi.

„Ég á erfitt með forsætisráðherra sem takmarkar siðferðisskyldur sínar við þrengsta lagabókstaf. Ég held ég sé ekki einn um að eiga erfitt með forsætisráðherra sem trassar að setja sér siðareglur, rýmkar þær frekar, og hrósar sér síðan af því að sleppa réttum megin við þær á hverjum tíma.

Ég fæ dálítið í magann yfir forsætisráðherra sem finnst fullkomlega eðlilegt að deila ekki kjörum sínum með þjóð sinni sem er föst innan gjaldeyrishafta, forsætisráðherra sem finnst ekki taka því að nefna milljarð á aflandseyju og líkir hagsmunum af hundruð milljóna kröfu við hagsmuni almennings í gegnum lífeyrissjóði.

Ég er verulega hugsi yfir forsætisráðherra sem svarar engum, dögum saman, þegar kemur í ljós að hann hafi haldið mikilvægum hagsmunum leyndum. Forsætisráðherra sem mætir loks í útvalda fjölmiðla og kennir stjórnarandstæðingum og fyrri ríkisstjórn um öll sín vandræði.

Ég veit að ég er ekki einn um að finnast þetta ekki öskra á traust.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er forsætisráðherra í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Í dag segist hann fagna vantrauststillögu til þess að geta rætt síðustu ríkisstjórn.

Við höfum beðið í rúma viku eftir að heyra að forsætisráðherra finnist hann vera í toppmálum og geri allt rétt og betur en aðrir.

Mér finnst þetta ekki í lagi og ég veit að sama hugsa ansi margir. Ábyrgð embættis forsætisráðherra er einfaldlega meiri en þetta.

En hvað finnst Sjálfstæðisflokknum? Eru sjálfstæðismenn sammála forsætisráðherra sínum um skilgreiningar á siðferði og hvað sé eðlilegt? Ég hlakka til að frétta það. Held að fleiri séu í svipaðri stöðu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert