Skömmu fyrir hádegi í dag var tilkynnt um þrjá menn inni á svæði sem tilheyra Faxaflóahöfnum. Að sögn lögreglu vaknaði grunur um að viðkomandi menn væru að reyna að lauma sér um borð í farskip.
Þegar mennirnir fundust kom í ljós að þeir eru hælisleitendur hér á Íslandi. Nöfn þeirra voru tekin niður og fór málið í venjubundinn feril samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.