Metfjöldi vill sýna beint frá Austurvelli

Mikill mannfjöldi er á Austurvelli og fólk streymir enn að.
Mikill mannfjöldi er á Austurvelli og fólk streymir enn að. mbl.is/Kristján

Sjónvarpsstöðvar frá flestum Evrópulöndum óskuðu eftir því við RÚV að fá að sýna beint frá mótmælafundi við Alþingishúsið nú í dag. Í frétt á vef RÚV segir að alls hafi 75 sjónvarpsstöðvar óskað eftir þjónustunni, en haft er eftir Hannesi Jóhannssyni, deildarstjóra tæknideildar RÚV, að tæknideildin hafi aldrei fengið eins margar beiðnir um útsendingu frá landinu.

Hannes tekur þó fram að ekki sé víst hvort stöðvarnar muni allar sýna beint frá mótmælunum, en þær vilji þó að sá möguleiki sé fyrir hendi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka