Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, mun funda með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands nú síðar í dag.
Einar fundar nú með stjórnarandstöðuflokkunum niðri á alþingi. Hann vildi ekki tjá sig um efni fundarins en staðfesti þó við blaðamann mbl.is að að þeim fundi loknum muni hann halda á Bessastaði á fund forsetans.