Minjastofnun mun kæra niðurrif Exeter hússins

Exeter húsið við Tryggvagötu 12 var rifið án leyfis.
Exeter húsið við Tryggvagötu 12 var rifið án leyfis. Ljósmynd/ Reykjavíkurborg

Minjastofnun Íslands hyggst kæra niðurrif Exeter hússins svo nefnda, rifið var í gær. Þetta staðfestir Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunnar.

„Við hjá Minjastofnun höfðum veitt leyfi til að hækka húsið og til þess að hækka það þá þarf að taka það af grunninum,“  segir Kristín Huld. Gild­andi deili­skipu­lag hafi aðeins veitt heim­ild til að lyfta hús­inu upp um eina hæð, breyta formi þaks á bak­hlið, sem og að reisa viðbyggingu við húsið.

Til stendur að reisa nýbyggingar á reitnum og átti gamla húsið, sem stóð við Tryggvagötu 12, að falla inn í þá mynd með breytingum.

Í morgun bárust Minjastofnun hins vegar myndir sem starfsmaður Borgarsögusafnsins tók í gær og sýndu að verið var að rífa húsið.

„Við fórum því niður eftir í morgun og þá var allt horfið,“ segir Kristín Huld. Húsið hafi verið rifið í fullkomnu óleyfi því hvorki Minjastofnun né Byggingafulltrúinn í Reykjavík hafi veitt leyfi fyrir niðurrifinu. „Minjastofnun mun kæra málið og ég veit ekki betur en að Reykjavíkurborg muni gera það líka.“

Kristín Huld segir að enginn svör hafi enn borist frá verktakanum, en húsið sem var reist 1906 hafi vissulega haft menningarsögulegt gildi.

„Það eina sem við getum gert er að kæra svona mál til lögreglunnar til að láta athuga hvað er í gangi.“

Farið langt út fyrir gildandi byggingarleyfi

„Ekk­ert bygg­ing­ar­leyfi hef­ur verið gefið út fyr­ir fyr­ir­hugaðri upp­bygg­ingu á lóðinni, en með bygg­ing­ar­leyfi frá 16. mars s.l. var veitt leyfi til að rífa hluta húss­ins Tryggvagötu 12 til und­ir­bún­ings end­ur­bóta á hús­inu,“ seg­ir í til­kynn­ingu sem Reykja­vík­ur­borg sendi frá sér í dag.

Húsið rifið án leyfis

„Reykja­vík­ur­borg lít­ur mjög al­var­leg­um aug­um á málið því með niðurrifi alls húss­ins var farið langt út fyr­ir gild­andi bygg­ing­ar­leyfi. Niðurrif húss­ins var því óleyfi­leg fram­kvæmd,  án allra til­skil­inna leyfa og í and­stöðu við gild­andi deili­skipu­lag, en um bygg­ing­ar­leyf­is­skyld­ar fram­kvæmd­ir er að ræða (...) Bygg­ing­ar­full­trúi Reykja­vík­ur hef­ur því  stöðvað fram­kvæmd­ir á reitn­um  og jafn­framt veitt eig­end­um sjö daga frest til  að koma á fram­færi skrif­leg­um skýr­ing­um og at­huga­semd­um vegna máls­ins.“

 Að frest­in­um liðnum mun bygg­ing­ar­full­trúi taka ákvörðun um til hvaða aðgerða verði gripið af hálfu borg­ar­inn­ar og „eft­ir at­vik­um kæra málið til lög­reglu“.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert