Vill flýta flokksþingi fyrir kosningar

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, telur heppilegast að flýta flokksþingi Framsóknarflokksins svo forysta hans geti endurnýjað umboð sitt fyrir komandi kosningar í haust.

Rík­is­stjórn­in hef­ur boðað kosn­ing­ar í haust sem stytt­ir þar með kjör­tíma­bilið um eitt löggjafarþing. Er þetta gert til að koma til móts við þá stöðu sem nú er uppi í ís­lensk­um stjórn­mál­um, en hingað til hefur nákvæm tímasetning kosninga ekki verið ákveðin.

„Ég tel það bæði lýðræðislegt og eðlilegt að flýta flokksþingi,“ segir Karl í samtali við mbl.is en að öllu óbreyttu verður næsta flokksþing Framsóknarflokksins haldið á næsta ári. Karl vill hins vegar að þingið fari fram fyrir komandi kosningar í haust.

Spurður hvort hann hafi orðið var við sömu afstöðu meðal annarra í flokknum kveður hann já við. „Ég er búinn að heyra í nokkrum.“

„Mér finnst eðlilegast að forystan fái nýtt umboð vilji hún halda áfram, það er lýðræðislegt,“ segir Karl og bætir við að Framsóknarflokkurinn kæmi þannig sterkari inn í kosningar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert